Hvernig flyt ég eignarhald fyrirtækjaaðgangs yfir á annan notanda?

Í Dokobit Portal getur eigandi fyrirtækjaaðgangs fært eignarhald aðgangsins yfir á annan notanda innan fyrirtækisins ef þess krefst þörf. 

Athugið: í þeim tilfellum þar sem eigandi aðgangsins er að hætta hjá fyrirtækinu ætti sá aðili að færa eignarhald yfir á annan notanda áður en hann lýkur störfum hjá fyrirtækinu. 

Athugið: að flytja eignarhald yfir á annan notanda er varanleg og óafturkræf aðgerð. Eftir að eigandinn hefur flutt eignarhaldið yfir á einhvern annan missir hann öll réttindi og getur ekki tekið breytinguna tilbaka. Eingöngu sá sem hefur eignarhaldið getur flutt þau tilbaka á upphaflegan eiganda eða annan notanda ef þess krefst þörf.

Athugið: þegar eignarhald er flutt yfir á annan notanda getur eigandi valið að halda stjórnendaréttindum eða gera sjálfan sig að almennum notanda. 

1. Til þess að flytja eignarhald, skráðu þig inn í Dokobit Portal, smelltu á "Stillingar" -tannhjólið efst í hægra horninu eða smelltu á nafnið þitt og veldur "Stillingar" úr listanum. 

eða

2. Veldu flipann "Notendastýring". 

3. Í listanum yfir notendur, veldu þann notanda sem þú vilt færa eignarhaldið yfir á og smelltu á "Aðgerðir". Veldu næst "Flytja eignarhald". 

4. Ef þú vilt halda stjórnendahlutverki þínu eftir að þú flytur eignarhald reiknings yfir á aðra manneskju, hakaðu þá í boxið "Halda stjórnendahlutverki". Staðfestu aðgerðina með því að smella á "Halda áfram". 

5. Staðfestu aðgerðina með því að smella á "Staðfesta og Flytja". 

Athugið: í þeim tilfellum þar sem eigandi fyrirtækjaaðgangs getur ekki fært eignarhald aðgangsins sjálfur yfir á annan notanda (hann starfar ekki lengur hjá fyrirtækinu t.d.), þarf stjórnandi innan fyrirtækisins að hafa samband við okkur með því að skrifa okkur tölvupóst á hallo@dokobit.is fyrir frekari upplýsingar og aðstoð. 

Þarftu frekari aðstoð? Hafðu samband Hafðu samband